Ýsa með kókoschutneyÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 7465 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Ýsa með kókoschutney. 500 grömm ýsa Olía 20 grömm smjör Kókoschutney: 200 grömm kókosmjöl 200 grömm rúsínur ½ búnt mynta ½ búnt kóríander 2 límónur 2 sítrónur 2 hvítlauksgeirar 45 grömm steytt kúmen 12 heilar kardemommur 1 matskeið harissa ½ desilítri eplaedikk 4-6 matskeiðar ólífuolía Salt og pipar Sósa: 3 desilítrar hreint jógúrt 2 matskeiðar tahin 1 matskeið sítrónusafi Salt og pipar Aðferð fyrir Ýsa með kókoschutney: Kókoschutney: Ristaðu kúmenið á pönnu þar til að lyktar sterkt. Takið pönnuna af hitanum og hellið kúmeninum í stóra skál ásamt kókosmjöli og rúsínum. Saxið myntu og kóríander og hellið í. Merjið hvítlaukinn og komið honum í blönduna. Ristið kardemommurnar á pönnu þar til þær eru brúnar og stökkar. Takið þær af pönnunni og merjið þær, notið aðeins innsta kjarnan og hendið afgangnum. Setjið kjarnana í kókosmjölið. Rífið börkinn af límónunum og sítrónunum og setjið hann útí. Hellið harissa, eplaedikki og ólífuolíu í og hrærið vel. Kryddið vel með salti og pipar. Sósa: Blandið jógúrti, tahin og sítrónusafa saman. Kryddið með salti og pipar. Fiskur: Skerið fiskinn í væna bita og kryddið með salti og pipar. Steikið fiskinn í blöndu og olíu og smjöri, þar til hann er gullinn. Berið fram með kókoschutneyinu og tahinsósunni. þessari uppskrift að Ýsa með kókoschutney er bætt við af Sylvíu Rós þann 08.07.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|