| Ýsa í karrý Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 12677     Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Ýsa í karrý. 2 væn ýsuflök í bitum Hveiti Salt og pipar Karrý Engifer Olía 2 græn epli 1 stór laukur Smjörlíki E.t.v. rjómi  Aðferð fyrir Ýsa í karrý: Blandið hveiti, salti, pipar, karrý og engifer saman. Rúllið fiskinum í blöndunni og steikið hann svo á pönnu, í smá olíu. Raðið honum svo í eldfast mót. Brytjið niður 2 græn epli og 1 stóran lauk. Steikið á pönnu og kryddið með karrý og engifer. Steikið þar til eplin eru mjúk. Hellið blöndunni yfir fiskinn og setjið í ofn við 180 gráður í 20 mínútur. Það er einnig hægt að hella smá rjóma út í fatið áður en það er sett í ofninn. þessari uppskrift að Ýsa í karrý er bætt við af Sylvíu Rós þann 23.06.10.  Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun | Uppskriftir vikunnar  
						Fáðu vikulegt fréttabréf:					 
				Nú eru 39 áskrifendur.
 | 





 
			
		
