Yndislegar smákökur


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3601

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Yndislegar smákökur.

125 grömm smjör, kalt
50 grömm sykur
175 grömm hveiti
150 grömm ristaðar macadamia-hnetur, jarðhnetur án hýðis eða afhýddar möndlur, gróft saxaðar

Karamellufylling og súkkulaðihjúpur:
115 grömm smjör
100 grömm sykur
1½ desilítri rjómi
2 matskeiðar síróp
200 grömm Síríus rjómasúkkulaði, saxað
50 grömm Cadbury’s Dream hvítt súkkulaði


Aðferð fyrir Yndislegar smákökur:

Hitið ofninn í 150°C. Smyrjð ferkantaða ofnskúffu, 23 cm á kant, vel og klæðið hana að innan með bökunarpappír. Myljið smjör, sykur og hveiti saman í skál þar til úr verður mjúk mylsna.
Þrýstið mylsnunni á botninn á ofnskúffunni og þrýstið hnetunum þar ofan á. Bakið í 30 mínútur eða þar til botninn er orðinn ljósgylltur. Takið ofnskúffuna úr ofninum og kælið.

Karamellufylling og súkkulaðihjúpur:
Hitið 100 grömm af smjöri og sykurinn saman í potti, við hægan hita, í um 10 mínútur, eða þar til blandan er orðin þykk. Bætið rjómanum út í ásamt sírópinu, hitið blönduna að suðu og hrærið stöðugt í á meðan.
Lækkið hitann og hrærið vel í blöndunni í 5-10 mínútur, þar til karamellan er orðin þykk og gyllt að lit. Gætið þess að hræra vel niður í botninn og út með hliðunum. Ef brúnir blettir taka að myndast í karamellumassanum, bætið þá örlitlum rjóma út í. Hellið síðan karamellunni yfir mylsnubotninn og kælið í 20 mínútur.

Sjóðið 4 matskeiðar af vatni í djúpum potti og bætið rjómasúkkulaðinu út í ásamt afganginum af smjörinu (15 grömm). Hrærið stöðugt í þar til súkkulaðið er bráðið. Jafnið súkkulaðikreminu yfir kökuna og kælið í 2 klukkustundir. Bræðið hvíta súkkulaðið gætilega, dreifið því yfir með teskeið og skerið kökuna síðan í bita með heitum hníf.


þessari uppskrift að Yndislegar smákökur er bætt við af Dísa Jóns þann 30.12.09.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Yndislegar smákökur
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Eftirréttir  >  Yndislegar smákökur