Vatnsdeigsbollur með hindberjum


Árstíð: Bolludagur - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 2414

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Vatnsdeigsbollur með hindberjum.

3 desilítrar vatn
1 desilítri fljótandi becel
2 matskeiðar sykur
2 desilítrar hveiti
3 egg

Fylling:
2 ½ desilítri rjómi
1-2 matskeiðar vanillusykur
250 grömm fersk hindber
Etv. bráðið súkkulaði til skrauts


Aðferð fyrir Vatnsdeigsbollur með hindberjum:

Sjóðið fljótandi becel, sykur og vatn saman í potti. Bætið við hveiti og hrærið vel. Takið pottinn af hitanum og hrærið í þar til degið byrjar að kólna. Hrærið eggin saman og bætið þeim í smátt og smátt. Hrærið degið kröftulega inn á milli.

Setjið degið í kramhús og sprautið því á plötu, með bökunarpapír, í kringlóttar eða aflangar bollur. Bakið við 200 gráður, í cirka 25-30 mínútur. Opnið ekki ofninn mitt í bakstri því bollurnar falla auðveldlega. Skerið bollurnar í tvennt þegar þær eru orðnar kaldar.
Þeytið rjóma og vanillusykur saman. Sprautið því í bollurnar og leggjið berin á. Leggjið lok á bollurnar og skreytið með súkkulaði.


þessari uppskrift að Vatnsdeigsbollur með hindberjum er bætt við af Sylvíu Rós þann 10.09.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Vatnsdeigsbollur með hindberjum
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kökur  >  Vatnsdeigsbollur með hindberjum