Uppskrift að ýsu


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Já - Slög: 9871

Senda með tölvupóstPrenta út

Smelltu hér til að sjá stærri mynd

Æðislegur fiskiréttur með ítölsku ívafi.
Hráefni:

Þú þarf eftirfarandi hráefni í þessa uppskrift að ýsu:

300 grömm frosin hrísgrjónablanda með maís, grænum baunum og rauðri papriku
600 grömm ýsa
Grænt pestó
Rasp
3 desilítrar tómatsafi eða grænmetisdjús
Nýmalaður pipar


Aðferð:

Hellið hrísgrjónablöndunni í botninn á eldföstu móti. Skerið ýsuna í hæfilega bita og leggjið bitana ofaná hrísgrjónablönduna. Smyrjið grænu pestó ofaná fiskinn og stráið raspi á pestóið. Smakkið djúsinn/safan til með pipar og hellið honum yfir hrísgrjónablönduna (ekki yfir fiskinn). Skellið mótinu í ofninn í cirka 25 mínútur, við 180 gráður, eða þar til fiskurinn er steiktur í gegn. Passið að hrísgrjónablandan verið ekki þurr. Berið fram með góðu brauði.



Uppskrift að ýsu er bætt við af Sylvíu Rós þann 21.03.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Uppskrift að ýsu
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Fiskiuppskriftir  >  Ýsa  >  Uppskrift að ýsu