Thailenskar svínakótelettur


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 2 - Fitusnautt: Já - Slög: 3576

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Thailenskar svínakótelettur.

2 svínakótelettur, cirka 100 grömm
Salt og pipar
2 teskeiðar olía

Karrýsósa:
1 teskeið olía
1 matskeið thailenskt gult karrýpasta
2 desilítrar kókosmjólk
1-2 matskeiðar fiskisósa eða sojasósa
1 matskeið sykur

Steik grænmeti:
1 lítill gulur kúrbítur
1 lítill grænn kúrbítur
1 rauð paprika
1 hvítlauksgeiri
1 teskeið ferskt engifer
1 teskeið olía
Basill eða steinselja til skreytingar
Hrísgrjón sem meðlæti


Aðferð fyrir Thailenskar svínakótelettur:

Sjóðið hrísgrjónin.

Hitið olíu á pönnu. Ristið karrýpastað í olíunni og bætið kókosmjólk í. Látið þetta malla. Smakkið til með fiskisósu, sykri og etv. salti.

Skerið kúrbítana í þunnar ræmur. Skerið paprikuna í strimla. Saxið hvítlaukinn smátt. Ristið hvítlauk og engifer á pönnu með olíu og setjið paprikuna á. Steikið þetta í 5 mínútur. Setjið kúrbítinn á pönnuna og steikið í cirka 2 mínútur. Hrærið í á meðan. Smakkið til með salti og pipar.

Þerrið kjötið og kryddið með salti og pipar. Hitið olíu á pönnu, við háan hita. Brúnið kjötið í 1 mínútu á hvorri hlið. Lækkið undir pönnunni og steikið kjötið áfram í cirka 2 mínútur, á hvorri hlið.

þessari uppskrift að Thailenskar svínakótelettur er bætt við af Sylvíu Rós þann 10.09.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 36 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Thailenskar svínakótelettur
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Svínakjötsuppskriftir  >  Thailenskar svínakótelettur