Tapas


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 8944

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Tapas.

2 ½ desilíter olívuolía
5 bökunarkartöflur
½ laukur
3 hvítlauksgeirar
5 egg
Salt


Aðferð fyrir Tapas:

Skrælið kartöflurnar og skerið í sneiðar, stráið salti yfir. Skerið laukinn í bita og hvítlaukinn í sneiðar. Hitið olíuna í potti og djúpsteikið kartöflurnar (farið varlega því saltið getur gert það að verkum að olían slettist mikið). Reynið að halda kartöflunum aðskildum því annars festast þær saman. Þær þurfa cirka 5 mínútur í pottinum.Bætið lauknum og hvítlauknum í pottinn og steikið með kartöflunum þangað til þær eru tilbúnar. Sigtið að lokum kartöflurnar í grófu sigti. Það má gjarnan væra cirka 3 matskeiðar af olíu eftir í pottinum.

Þeytið egg og salt í stórri skál. Bætið kartöflunum útí og látið eggjablönduna hylja kartöflurnar. Hellið svo kartöflunum ásamt eggjablöndunni aftur í pottinn og spælið, hristið pottinn reglulega. Hellið eggjakökunni á disk og leggið varlega aftur í pottinn (þannig að sú hlið sem var upp er nú niður). Látið kólna og skerið í mátulegar sneiðar

Stráið salt yfir og pressið örlítinn sítrónusafa á hverja sneið. Hægt er að bera þetta fram heitt eða við stofuhita. Spænsk eggjakaka er þykir hversdags tapas.


þessari uppskrift að Tapas er bætt við af Sylvíu Rós þann 08.07.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Tapas
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Spænskar uppskriftir  >  Tapas