Svínakótelettur með ananas


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 10703

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Svínakótelettur með ananas.

4 svínakótelettur
1 dós ananas
1 dós sveppir
¼ lítri rjómi
1 svínateningur
1 ½ teskeið karrý
Salt og pipar
Maisenamjöl

Aðferð fyrir Svínakótelettur með ananas:

Kryddið kóteletturnar með blöndu af salti, pipar og karrý. Brúnið þær á pönnu, á báðum hliðum. Leggjið þær í eldfast mót. Sigtið saftið frá ananasinum og sveppunum og geymið. Steikið ananasinn gylltan á pönnunni og ristið sveppina. Stráið sveppunum yfir kóteletturnar og leggjið ananasinn yfir. Setjið smjör á pönnuna á ristið 1 teskeið af karrý í. Hellið safanum frá anansinum og sveppunum á og bætið rjóma við. Setjið svínatening út í. Jafnið sósuna með maisenamjöli, ef hún er of þunn. Hellið sósunni yfir kóteletturnar. Steikið í ofni, í 40-50 mínútur, við 200 gráður. Berið fram með hrísgrjónum.


þessari uppskrift að Svínakótelettur með ananas er bætt við af Sylvíu Rós þann 10.09.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Svínakótelettur með ananas
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Svínakjötsuppskriftir  >  Svínakótelettur með ananas