Svínakjöt á teini


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3396

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Svínakjöt á teini.

6-8 bambuspinnar
700 grömm svínalundir
1 stór laukur
2 paprikur
Salt og pipar
½ desilítri hveiti
1 egg
2 desilítrar brauðrasp
Olía til steikingar

Engifersósa:
½ desilítri sojasósa
½ desilítri sake
2 matskeiðar sykur
2 matskeiðar grænmetisolía
1 teskeið rifinn hvítlaukur
1 teskeið rifin engiferrót




Aðferð fyrir Svínakjöt á teini:

Leggjið bambuspinnana í bleyti, í volgt vatn, í um 30 mínútur. Himnuhreinsið svínalundirnar og skerið munnbita. Skerið laukinn og paprikuna einnig í munnbita. Þræðið til skiptis kjöt og grænmeti á pinnana. Kryddið með salti og pipar. Setjið hveitið í grunna og víða skál, brjótið eggið í aðra skál og þeytið lauslega með gaffli og setjið raspið í þriðju skálina. Veltið pinnunum fyrst upp úr hveiti, síða eggi og hjúpið loks með raspinu.
Leggið pinnana á fat, breiðið plastfilmu yfir og látið standa í kæli í 15-20 mínútur. Hitið olíuna í djúpri pönnu og steikið pinnana þar til þeir eru gullbrúnir að lit. Berið fram heitt með kaldri engifersósu og hrísrjónum.

Sósan: Rífið hvítlaukinn og engiferrótina og setjið í skál ásamt hinu hráefninu. Hrærið. Geymið í lokuðu íláti fram að framreiðslu.

þessari uppskrift að Svínakjöt á teini er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Svínakjöt á teini
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Austrænn matur  >  Svínakjöt á teini