Sveppasúpa


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4448

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Sveppasúpa.

25 grömm þurrkaðir villisveppir
30 ml. olífuolía
1 teskeið smjör
2 laukar þunnt skornir
2 skallottulaukar gróft saxaðir
1 hvítlauksgeiri gróft saxaður
225 grömm ferskir kastaníusveppir
1,2 líter Oscar nautakraftur
1/2 teskeið þurrkað timian
150 ml. rjómi
Salt og nýmalaður svartur pipar
Ferskar timiangreinar til skrauts


Aðferð fyrir Sveppasúpa:

Setjið villisveppina í skál og bætið í hana 250 ml. af heitu vatni og látið þá mýkjast í 20-30 mínútur. Takið sveppina úr vatninu og pressið vökvan úr þeim yfir skálinni. Geymið vökvan til notkunar síðar.
Hitið olíuna og smjörið á pönnu þar til myndast froða. Bætið lauknum, skallottulauknum, hvítlauknum og steikið létt í 5 mínútur. Hrærið stöðugt í þar til laukarnir eru farnir að mýkjast án þess að fá á sig lit.
Saxið fersku sveppina og bætið á pönnuna. Hrærið í við meðalhita í nokkrar mínútur þar til þeir fara að mýkjast. Færið yfir í pott og bætið nautakraftinum út í og látið sjóða. Bætið villisveppum, vökvanum af þeim og þurrkuðu timian, salti og pipar út í. Lækkið hitan og setjið lok yfir pottinn til hálfs. Eldið í 30 mínútur og hrærið í af og til.
Hellið 3/4 súpunnar í matvinnsluvél og maukið þar til hún verður silkimjúk. Hellið svo aftur í pottinn, hrærið rjóma út í og hitið súpuna vel. Ef súpan er of þykk bætið þá meira af nautakrafti í. Smakkið súpuna til og bætið út í salti og pipar ef þarf. Stráið ferskum timiangreinum yfir til skrauts, áður en súpan er borin fram.

þessari uppskrift að Sveppasúpa er bætt við af Elinborgu þann 13.10.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Sveppasúpa
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Ítalskar uppskriftir  >  Sveppasúpa