Sushi lax


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 5871

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Sushi lax.

1 laxaflak roðlaus og beinlaust
2 bollar góð dökk sojasóa
2 matskeiðar hunang
2 matskeiðar fersk engiferrót
2 matskeiðar ferskur graslaukur
1 matskeið ferskur hvítlaukur
1 Wasbi túba

Aðferð fyrir Sushi lax:

Blandið sojasóu og hunangi saman í skál og hrærið þangað til hunangið er uppleyst. Fínsaxið engiferrót, graslauk og hvítlauk, mjög smátt og setjið út í vökvann og látið bíða góða stund á meðan blandan verkast. Skerið laxinn í örþunnar sneiðar og honum raðað snyrtilega á disk. Sojablandan er sett á borðið ásamt Wasabi á disk. Laxinn er síðan snæddur þannig að tekin er sneið af laxinum og honum dýft í sojablönduna og svo sett örlítið wasabi á.


þessari uppskrift að Sushi lax er bætt við af Sylvíu Rós þann 23.06.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Sushi lax
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Austrænn matur  >  Sushi lax