Súkkulaðikaka með möndlum og döðlum


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3383

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Súkkulaðikaka með möndlum og döðlum.

250 grömm smjör
250 grömm suðusúkkulaði
4 egg
250 grömm sykur
60 grömm möndluflögur
150 grömm döðlur
150 grömm hveiti
1 matskeið brúnkökukrydd
1 teskeið lyftiduft


Aðferð fyrir Súkkulaðikaka með möndlum og döðlum:

Bræddu smjörið og súkkulaðið saman í potti, við lágan hita. Þeyttu egg og sykur, þar til blandan er létt og ljós. Hrærðu möndlum og döðlum út í. Sigtaðu hveiti, brúnkökukryddi og lyftidufti saman við. Helltu súkkulaðismjörinu í og hrærðu deginu snögglega saman.
Helltu deginu í stórt springform og bakaðu kökuna í miðjum ofni, við 160 gráður, í cirka 60 mínútur. Prófaðu að stinga í kökuna til að athuga hvort hún sé tilbúin, ef það er ekkert deig á prjóninum er hún tilbúin.


þessari uppskrift að Súkkulaðikaka með möndlum og döðlum er bætt við af Sylvíu Rós þann 30.10.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Súkkulaðikaka með möndlum og döðlum
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kökur  >  Súkkulaðikaka með möndlum og döðlum