Suðrænn fiskréttur


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 7768

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Suðrænn fiskréttur.

1 bolli hrísgrjón
600 grömm ýsuflök
100 grömm hveiti
Salt
Pipar
Olía til steikingar
200 grömm sveppir
½ dós ananasbitar
8 matskeiðar majónes eða léttmajónes
3 teskeiðar karrý
2 desilítrar ananassafi
Ostur


Aðferð fyrir Suðrænn fiskréttur:

Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningunum á pakkanum. Roðflettið ýsuna og skerið í bita. Blandið saman hveiti, salti og pipar og veltið fiskinum upp úr því. Léttsteikið fiskinn í olíu. Smyrjið eldfast mót setjið hrísgrjónin í botninn og raðið steiktum fiskinum þar ofan á. Skerið sveppina í sneiðar og raðið þeim og ananasbitunum ofan á fiskinn. Kryddið majónesið með karrý og blandið ananassafa varlega út í. Hellið sósunni yfir réttinn. Rífið ostinn og stráið yfir. Bakið í 175 gráðu heitum ofni, í 20-30 mínútur. Berið fram með hrásalati og hvítlauksbrauði.
Raðið fiskbitunum þétt saman þannig að sósan haldist ofan á fiskinum og blandist ekki um of saman við hrísgrjónin.


þessari uppskrift að Suðrænn fiskréttur er bætt við af Sylvíu Rós þann 05.05.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Suðrænn fiskréttur
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Fiskiuppskriftir  >  Ýsa  >  Suðrænn fiskréttur