Spareribs í ofni


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 4880

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Spareribs í ofni.

1 sítróna
1,5 kíló spareribs
¼ teskeið pipar
¾ teskeið paprikkuduft

Kryddlögur:
1,5 desilíter tómatsósa
3 matskeiðar eplaedikk
1 teskeið sinnepsduft (eða sinnep)
Örlítið tabasco
1,5 desilíter hakkaður laukur
4 matskeiðar púðursykur


Aðferð fyrir Spareribs í ofni:

Settu kjötið í eldfast mót. Leggðu sítrónusneiðar í mótið. Kryddaðu kjötið með paprikkudufti, salti og pipar. Hitið í ofni við 200 gráður í 20 mínútur. Blandið öllum hráefnunum í kryddlöginn saman í pott og sjóðið í nokkrar mínútur. Lækkið ofninn í 175 gráður. Smyrjið kjötið með helming sósunnar. Kjötið á að vera í ofninum í klukkutíma, hellið vökvanum, sem safnast í mótið, yfir kjötið öðru hvoru og smyrjið kjötið með kryddlegi.

þessari uppskrift að Spareribs í ofni er bætt við af Sylvíu Rós þann 08.07.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Spareribs í ofni
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Amerískar uppskriftir  >  Spareribs í ofni