Sherrýfrómas


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3585

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Sherrýfrómas.

4 egg
200 grömm sykur
9 blöð matarlím
75-100 grömm rifið suðusúkkulaði
1/2 dós jarðaber
2 desilítrar sherrý
6 desilítrar rjómi
Sítrónusafi
3 matskeiðar vatn

Aðferð fyrir Sherrýfrómas:

Eggjarauður og sykur þeytt saman, sherrý og sítrónusafa bætt í. Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn og svo brætt yfir gufu. Síðan er bætt 3 matskeiðum af vatni í matarlímið. Kælt og þeytt út í eggjamassann. Þeytið rjóman og stífþeytið eggjahvíturnar og hrærið út í. Setjið jarðaberin í. Hrærið í af og til á meðan frómasinn er að stífna. Skreytið með rifnu súkkulaði. Hægt er að nota ávaxtasafa í staðinn fyrir sherrý.


þessari uppskrift að Sherrýfrómas er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 22.12.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Sherrýfrómas
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Eftirréttir  >  Sherrýfrómas