Rjúpur með mynturjómasósu


Árstíð: Áramót - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4152

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Rjúpur með mynturjómasósu.

5-6 rjúpur
2-3 teskeiðar villijurtakrydd
1 teskeið salt
1/2 teskeið svartur pipar
Smjör

Sósa:
1 laukur
3-4 stilkar sellerí
1 matskeið smjör
3 teskeiðar villijurtakrydd
8-10 desilítrar soð
2 desilítrar rjómi
1 desilítri vatn
4 matskeiðar hveiti
Salt
Svartur pipar
1-2 matskeiðar myntuhlaup eða annað berjahlaup
Sósulitur

Aðferð fyrir Rjúpur með mynturjómasósu:

Hreinsið rjúpunar og leggið í mjólkurbland í 6-8 tíma. Hreinsið innyflin úr og brúnið í smjöri ásamt rjúpunni. Stráið salti, pipar og villikryddi yfir fuglinn, á hvorri hlið, þegar búið er að brúna. Látið kjötið í pott. Sjóðið upp af pönnunni og hellið yfir fuglinn. Bætið við vatni, þannig að soðið verði 1 - 1 1/2 lítri. Saltið í pottinn ef með þarf. Sjóðið í 40-50 mínútur.

Sósan:
Saxið lauk og sellerí frekar smátt og látið krauma í smjöri. Bætið síðan soði og villijurtakryddi út í og látið sjóða í 5 mínútur. Látið rjómann út í og jafnið með hveitijafningi. Setjið myntuhlaup saman við og sjóðið við vægan hita í 5-7 mínútur. Kryddið ef med þarf og litið með sósulit.

þessari uppskrift að Rjúpur með mynturjómasósu er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 27.12.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 33 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Rjúpur með mynturjómasósu
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Villibráð  >  Rjúpur með mynturjómasósu