Rækju-sushi


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4085

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Rækju-sushi.

2 desilítrar Jasmín hrísgrjón
4 1/2 desilíter vatn
1 1/4 matskeiðar hvítvinsedikk
1 1/2 teskeið salt
1 1/2 teskeið sykur
2 matskeiðar Sake eða hvítvín
1/2 gúrka
1 matskeið salt
20 rækjum með skel
2 matskeiðar rifin piparrót
2 matskeiðar fiskisinnep eða dijonsinnep
1 búnt púrrlaukur


Aðferð fyrir Rækju-sushi:

Skolið hrísgrjónin í sigti. Sjóðið vatn. Setjið hrísgrjónin í og látið malla í 15 mínútur. Tagið pottinn af hellunni. Hellið edikki, salti, sykri og Sake í pottinn. Látið kólna. Skerið gúrkuna í tvennt langsöm og skafið kjarnan úr með skeið. Saltið og látið standa í klukkutíma, skolið svo. Skerið í þunnar sneiðar. Takið höfuðið af rækjunum. Hrærið saman piparrót og sinnepi. Rúllið 20 aflangar bollur úr hrísgrjónunum (auðveldast með matskeið, dýfið henni í kalt vatn inn á milli.) Setjið cirka 1/2 teskeið af piparrótarblöndu ofaná hrísgrjónabollurnar og skreytið með gúrku, rækjum og púrrlauk.

þessari uppskrift að Rækju-sushi er bætt við af Sylvíu Rós þann 17.08.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Rækju-sushi
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Fiskiuppskriftir  >  Rækjur  >  Rækju-sushi