Pottréttur með lambakjöti


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4000

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Pottréttur með lambakjöti.

700 grömm lambakjöt
5 matskeiðar olía
2 laukar, saxaðir
3 hvítlauksrif, söxuð
300 grömm kastaníusveppir, gróft skornir
1 rauð paprika, skorin í strimla
1 gul paprika, skorin í strimla
1 teskeið kóríanderduft
1 teskeið kumminduft
½ teskeið cayenne pipar
350 grömm grænmetissoð
1 krukka kjúklingabaunir
300 grömm paprikumauk í krukku
1 matskeið tómatmauk
1 matskeið dijon sinnep
Svartur, nýmalaður pipar
Salt

Aðferð fyrir Pottréttur með lambakjöti:

Skerið kjötið í strimla. Hitið olíu á pönnu. Saltið og piprið kjötið og steikið síðan á pönnu í 5 mínútur. Takið kjötið af pönnunni og setjið það til hliðar. Hitið nú meiri olíu í potti og steikið laukinn þangað til hann er glær. Setjið svo hvítlauk og sveppi í pottinn, bætið við papriku og látið þetta malla í 5 mínútur. Setjið nú kryddið út í ásamt soði, paprikumauki, tómatmauki, sinnepi og kjúklingabaunum. Látið þetta allt malla við vægan hita í 10 mínútur. Setjið kjötið aftur í pottinn og látið það sjóða í 10 mínútutur. Bætið við vatni ef þarf. Smakkið til með salti og pipar. Berið fram með brauði og salati.


þessari uppskrift að Pottréttur með lambakjöti er bætt við af Sylvíu Rós þann 01.06.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Pottréttur með lambakjöti
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Lambakjötsuppskriftir  >  Pottréttur með lambakjöti