Öðruvísi muffins


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 12 - Fitusnautt: Nei - Slög: 13253

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Öðruvísi muffins.

Súkkulaðikrem:
1 desilítri rjómi
2 matskeiðar síróp
100 grömm Síríus Konsum, saxað
50 grömm hrein jógúrt
250 grömm flórsykur
50 grömm Cadbury’s Dream hvítt súkkulaði

Múffur:
100 grömm Síríus Konsum, saxað
1 matskeið rjómi
2 matskeiðar koníak
1 matskeið flórsykur
150 grömm smjör
175 grömm dökkur muscovado-sykur
125 grömm hveiti
50 grömm kakó
1½ teskeið lyftiduft
3 egg


Aðferð fyrir Öðruvísi muffins:

Súkkulaðikrem:
Byrjið á því að búa til súkkulaðikremið. Hitið rjóma og síróp saman að suðu en látið ekki sjóða. Brjótið Síríus Konsum-súkkulaðið í bita og setjið í skál. Hellið rjómablöndunni yfir og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Blandið jógúrtinu saman við ásamt flórsykrinum. Hrærið vel saman og látið bíða í kæli í 2 klukkustundir.
Hrærið upp í kreminu eftir að það er tekið út úr kælinum. Setjið eina matskeið af kreminu ofan á hverja múffu eftir að þær hafa kólnað. Skrælið þunnar ræmur af hvítu súkkulaði með grænmetisflysjara og dreifið yfir til skrauts.

Múffur:
Hitið ofninn í 180° gráður og raðið 12 pappírsmúffuformum í múffumót (annaðhvort álmót eða silíkonmót).
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hrærið rjóma, koníaki og flórsykri saman við þegar súkkulaðið er bráðið og kælið í um 15 mínútur.
Hrærið smjör, muscovado-sykur, hveiti, kakó, lyftiduft og egg saman í annarri skál þar til blandan er orðin létt og samfelld.
Setjið helminginn af deiginu í múffuformin og setjið svo eina skeið af súkkulaðiblöndunni ofan á. Setjið afganginn af deiginu ofan á og bakið múffurnar í 15-18 mínútur. Takið múffurnar út úr ofninum og leyfið þeim að kólna á bökunargrind.


þessari uppskrift að Öðruvísi muffins er bætt við af Dísa Jóns þann 30.12.09.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Öðruvísi muffins
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Eftirréttir  >  Öðruvísi muffins