Nautalundir í ofni


Árstíð: Áramót - Fyrir: 6 - Fitusnautt: Nei - Slög: 9340

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Nautalundir í ofni.

750 grömm nautalundir
1 teskeið salt
1/2 teskeið pipar
2 matskeiðar smjör
150 grömm niðursoðin paprika
500 grömm niðursoðin gúrka
4 desilítrar rjómi eða mjólk
75 grömm smjör
2-3 hvítlauksgeirar
1/4 teskeið salt
1/8 teskeið svartur pipar


Aðferð fyrir Nautalundir í ofni:

Hitið ofninn í 225 gráður. Skerið alla fitu og sinar úr kjötinu. Nuddið salti og pipar í kjötið og brúnið það vel á pönnu, í smjörinu. Setjið kjötið í eldfast mót og steikið í ofni í 15-20 mínútur. Látið kjötið kólna í 10 mínútur áður en það er skorið í 1 cm þykkar sneiðar. Hækkið ofninn í 250 gráður. Blandið saman bræddu smjöri, pressuðum hvítlauk, salti og pipar. Skerið paprikku og gúrku í sneiðar. Raðið kjötsneiðunum í eldfast mót. Dreifið papriku og gúrku yfir kjötið. Hellið rjóma og smjörblöndu yfir. Bakið í miðjum ofni í 5-8 mínútur. Berið fram með krydduðum, soðnum hrísgrjónum og fersku salati.

þessari uppskrift að Nautalundir í ofni er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 28.12.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Nautalundir í ofni
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Nautakjöt  >  Nautalundir í ofni