Nautafilet með mateirasósuÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 3163 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Nautafilet með mateirasósu. 1 kíló nautafilet 25 grömm smjör 1 teskeið svartur pipar 2 teskeiðar salt Sósan: 2 matskeiðar smjör 1 laukur 200 grömm ferskir sveppir 2-3 matskeiðar hveiti 1 dós (200 gr) sýrður rjómi 18% 2 desilítrar vatn 1-2 teskeiðar kjötkraftur Örlítill sósulitur 1-2 matskeiðar madeira Aðferð fyrir Nautafilet með mateirasósu: Steikið kjötið á öllum hliðum í smjörinu, á vel heitri pönnu þannig að sárið lokist. Kryddið með piparnum og leggið svo kjötið á rist ofan á ofnskúffu. Glóðarsteikið kjötið síðan við um það bil 150 gráður í 10-15 mínútur. Takið kjötið úr ofninum og saltið. Pakkið því svo inn í álpappír og látið bíða í 10-15 mínútur, áður en það er skorið í þunnar sneiðar. Sósan: Saxið laukinn og skerið sveppina í sneiðar. Látið lauk og sveppi krauma í smjörinu. Stráið hveitinu yfir og bætið sýrðum rjóma, vatni og kjötkrafti út í. Hrærið vel. Látið sjóða við vægan hita í 5-10 mínútur. Bætið sósulit og madeira út í og hitið vel, sjóðið ekki. Smakkið til með salti og pipar. Berið kjötið fram með sósunni, bökuðum kartöflum og fersku grænmeti. þessari uppskrift að Nautafilet með mateirasósu er bætt við af Ellinborgu Baldvinsdóttur þann 27.12.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|