Mousse-terta


Árstíð: Jól - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3000

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Mousse-terta.

Botnar:
100 grömm Síríus suðusúkkulaði (konsum)
200 grömm marsipan
2 desilítrar mjólk
100 grömm hveiti
2 egg
50 grömm sykur

Fylling:
100 grömm Síríus suðusúkkulaði
2 egg
50 grömm sykur
1/2 teskeið salt
1 teskeið vanilludropar
2 matskeiðar Amaretto líkjör (eða sterkt kaffi)
5 blöð matarlím
2 1/2 desilítrar rjómi

Aðferð fyrir Mousse-terta:

Botnar:
Hitið súkkulaðið, rífið marsipanið og mjólk saman í pott, kælið og þeytið eggarauðurnar saman við. Hveiti er síðan bætt varlega saman við, ekki hræra of mikið. Stífþeytið eggjahvíturnar og sykur. Blandið varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju. Setjið í tvö 24 cm hringform. Bakið við 170 gráður í 10-12 mínútur.

Fylling:
Þeytið saman: eggjarauður, sykur ,salt og vanilludropa. Bræðið súkkulaðið, kælið það dálítið og hellið út í eggjahræruna. Bleytið matarlímið í köldu vatni í 5 mínútur. Kreistið úr því vatnið og bræðið það yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni ásamt likjörinu/kaffinu. Hrærið þessu saman við súkkulaðiblönduna. Stífþeytið rjómann og blandið honum saman við blönduna og að lokum einnig stífþeyttum eggjahvítunum. Takið annan kökubotninn og setið í djúft 24 cm smelluform. Hellið fyllingunni yfir og setjið hinn botninn ofan á. Geymið í kæli í 6-9 klukkustundir. Gott er að bleyta neðri botninn aðeins með Amaretto líkjörinu eða kaffi. Sigtið að lokum flórsykur yfir tertuna.

þessari uppskrift að Mousse-terta er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 27.10.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 36 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Mousse-terta
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kökur  >  Mousse-terta