Lúðu uppskriftÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 11191 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í þessa uppskrift af lúðu 1 kíló lúða eða ýsa Sítrónupipar Rækjur ½ púrrlaukur Græn og rauð paprika 1 box sveppir 3 gulrætur, sneiddar 1 ½ askja paprikusmurostur 1 peli rjómi 2 teskeiðar paprikuduft Slat Karrý 2 teningar nautakraftur 3-4 matskeiðar ananaskurl Aðferð: Sjóðið fiskinn í stutta stund og setjið hann í eldfast mót. Kryddið með sítrónupipar og stráið rækjunum yfir. Steikið púrrlauk, papriku, sveppi og gulrætur á pönnu. Setjið smurostinn og rjóman yfir og látið ostinn bráðna. Kryddið með paprikudufti, salti, karrý og 2 teningum. Bætið ananskurli í. Hellið þessu yfir fiskinn og bakið í ofni, við 180 gráður, í cirka 20 mínútur. Berið fram með kartöflum og salati. Lúðu uppskrift er bætt við af Sylvíu Rós þann 13.07.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|