Lagkaka með súkkulaðikremi


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3524

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Lagkaka með súkkulaðikremi.

250 grömm smjörlíki
260 grömm sykur
260 grömm hveiti
2 teskeiðar lyftiduft
4 egg
1 matskeið mjólk
1/2 teskeið vanilludropar

Krem:
1/4 bolli smjörlíki
2 1/4 bolli flórsykur
100 grömm súkkulaði
3 matskeiðar rjómi
1/2 teskeið vanilludropar


Aðferð fyrir Lagkaka með súkkulaðikremi:

Degið:
Hrærið smjörlíki og sykur saman, þar til það er orðið létt og ljóst. Bætið eggjunum út í einu í senn. Þeytið vel. Blandið þurrefnunum saman og bætið þeim í hræruna. Degið er bakað í lagkökumóti eða í skúffu. Ágætt er að búa til pappírsskúffu eins og fyrir rúllutertu og skipta deginu í tvennt.
Til að fá lagkökuna fjórfalda er hvorum botni skipt í tvennt. Kremið dugir alveg til þess.

Krem:
Smjörlíki og sykur hrært saman. Súkkulaðið brætt yfir gufu og smám saman bætt út í sykurblönduna. Bætið síðan rjómanum og vanilludropunum í. Hrært með sleif, þangað til kremið hefur kólnað það mikið að það er orðið mátulega þykkt til að smyrja því á kökuna.


þessari uppskrift að Lagkaka með súkkulaðikremi er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 23.02.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Lagkaka með súkkulaðikremi
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kökur  >  Lagkaka með súkkulaðikremi