Kjúklingur - uppskrift að kjúkling


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 7031

Senda með tölvupóstPrenta út

Smelltu hér til að sjá stærri mynd

Gætið þess að salta kjúklinginn vel. Þessi réttur er einnig góður með pasta.
Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í þessa uppskrift að kjúkling:

4 kjúklingabringur, skinnlausar
50 grömm smjör
1/2 laukur, saxaður
2 dósir (2x400 grömm) tómatar, saxaðir
1/3 bolli vermouth
100 grömm rjómaostur með sólþurrkuðum tómötum
Pipar
Salt


Aðferð:

Kljúfið hverja bringu í tvennt. Stráið salti og pipar á bringurnar og látið þær krauma í smjörinu í um það bil 5 mínútur á hvorri hlið. Takið bringurnar upp og haldið þeim heitum. Látið laukinn krauma í smjörinu í um það bil 4-5 mínútur án þess að brúnast. Bætið tómötunum út í og látið þetta sjóða í 2-3 mínútur. Bætið víninu út í og látið sjóða niður um einn þriðja. Setjið sósuna í blandara ásamt rjómaosti og blandið í nokkrar mínútur. Setjið sósuna á pönnuna aftur og hitið vel. Setjið bringurnar á fat og hellið sósunni yfir.

Kjúklingur - uppskrift að kjúkling er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 13.01.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Kjúklingur - uppskrift að kjúkling
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kjúklingauppskriftir  >  Kjúklingur - uppskrift að kjúkling