Kjúklinga wok


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 6176

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kjúklinga wok.

1,5 kíló kjúklingavængir
2 matskeiðar hnetuolía
2 marðir hvítlauksgeirar (eða 1 teskeið af mauki)
1 matskeið marinn engifer
1 maískólfur, skorinn í bita skorinn í bita ( jafnvel betra að hafa baby corn maís)
2 gulrætur saxaðar
1 púrrulaukur saxaður
1 paprika söxuð
¼ bolli oyster sauce
2 matskeiðar hoisin sauce
2 matskeiðar plum sauce
Kóriender til skrauts



Aðferð fyrir Kjúklinga wok:

Vængirnir eru teknir í sundur, í þrjá hluta og fremsta hlutanum hent. Afgangurinn er settur í pott og soðinn í gegn. Þegar því er lokið eru vængirnir teknir upp úr og vatnið látið renna af þeim. Hnetuolían (1 matskeið) er hituð á wokpönnu og kjúklingurinn, hvítlaukurinn og engiferinn steiktur upp úr henni. Jafnvel gert í hollum. Þetta er svo tekið til hliðar. Þá er afganginum af olíunni hellt á pönnuna, maísnum, gulrótunum, púrrunni og paprikunni hellt út á og steikt í smá stund. Þá er vængjunum blandað saman við grænmetið á pönnunni og útí þetta allt saman eru sósurnar þrjár settar og látnar sjóða aðeins. Á einu augabragði er þessi ljúffengi réttur tilbúinn.

þessari uppskrift að Kjúklinga wok er bætt við af Sylvíu Rós þann 31.05.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Kjúklinga wok
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Austrænn matur  >  Kjúklinga wok