karamellubomba


Árstíð: Jól - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4943

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að karamellubomba.

Botnar:
5 egg
4 desilítrar sykur
4 desilítrar mulið kornfleks
3 desilítrar möndlur, muldar
250 grömm Síríus suðusúkkulaði (konsum), brytjað
1 1/2 teskeið lyftiduft

Karamellukrem:
2 1/2 desilítrar rjómi
1 1/2 desilítri sykur
3 matskeiðar síróp
2 matskeiðar smjör
1 teskeiðar vanilludropar
4 desilítrar rjómi



Aðferð fyrir karamellubomba:

Botnar:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Blandið þurrefnunum varlega saman við. Bakið í þremur meðalstórum formum við 175-200 gráður, í 20-30 mínútur.

Karamellukrem:
Setjið rjómann, sykurinn og sírópið í pott og sjóðið þar til blandan þykknar (20-30 mínútur), hrærið í öðru hvoru. Hrærið smjörinu og vanilludropunum saman við. Kælið, t.d við að setja pottinn í kalt vatn. Setjið botnana saman með þeyttum rjóma og hluta af karamellukreminu á milli, hellið svo afganginum af karamellukreminu ofan á kökuna.

þessari uppskrift að karamellubomba er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 28.10.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

karamellubomba
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kökur  >  karamellubomba