Karamellu brownies


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 6600

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Karamellu brownies.

280 grömm Síríus Konsum 70% súkkulaði
3 egg
2 teskeiðar vanilludropar
280 grömm púðursykur
80 grömm hveiti
1½ teskeið lyftiduft
¼ teskeið salt
200 grömm smjör, bráðið
200 grömm pekanhnetur


Aðferð fyrir Karamellu brownies:

Hitið ofninn í 170°C. Saxið allt súkkulaðið og bræðið helminginn af því yfir vatnsbaði. Þeytið egg, vanilludropa og púðursykur saman þar til blandan verður létt og ljós. Sigtið hveiti, lyftiduft og salt og blandið varlega saman við. Blandið bræddu súkkulaði og smjöri saman við deigið og hrærið varlega saman þar til það er slétt og samfellt.
Blandið að lokum söxuðu súkkulaðinu ásamt hnetunum varlega saman við.
Smyrjið 20 cm x 30 cm ferkantað kökuform vel og klæðið það að innan með bökunarpappír.
Hellið deiginu í formið og bakið í 20-22 mínútur. Leyfið kökunni að kólna dálítið í forminu áður en hún er skorin í bita. Berið bitana fram volga með vanilluís eða þeyttum rjóma og berjum.


þessari uppskrift að Karamellu brownies er bætt við af Dísa Jóns þann 30.12.09.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 28 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Karamellu brownies
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Eftirréttir  >  Karamellu brownies