Kálfakjöt með sveppum


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 5693

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kálfakjöt með sveppum.

125 gröm ferskir sveppir
1 laukur
20 gröm smjör
Salt og pipar
Sítrónugras
1 teskeið sítrónusaft
4 sneiðar kálfakjöt cirka 100 gröm hver
30 gröm smjör
1/2 desilíter hvítvín
2 desilítrar kjötkraftur
1 teskeið jafnari eða hveiti

Aðferð fyrir Kálfakjöt með sveppum:

Hreinsið sveppina og kseirð þá í sneiðar. Skerið laukinn smátt. Léttsteikið laukinn og sveppina í potti með smá smjöri. Smakkið til með salti og pipar, sítrónugarasi og sítrónusafti. Hamrið kjötið léttilega. Smyrjið sveppafyllingunni á kjötið og rúllið því upp, festið endana með kjötnál. Brúnið kálfarúllurnar á pönnu og setjið í eldfast mót. Hellið kjötkrafti og hvítvíni á pönnuna. Jafnið hvítvínssósuna með smá hveiti eða jafnara. Smakkið til og hellið yfir kálfarúllurnar. Hitið ofninn á 220 gráðum og eldið rúllurnar í 15 mínútur. Berið fram með hrísgrjónum eða liltum kartöflum.

þessari uppskrift að Kálfakjöt með sveppum er bætt við af Sylvíu Rós þann 20.08.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Kálfakjöt með sveppum
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Nautakjöt  >  Kálfakjöt með sveppum