Ítalskt brauð


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 6550

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Ítalskt brauð.

2 teskeiðar þurrger
1,5 desilítri mjólk
1,5 desilítri vatn
15 grömm sykur
1 matskeið ólífuolía
1 teskeið gróft salt
1 teskeið rósmarín
500 grömm hveiti
1 búnt ferskt rósmarín og sesamfræ

Aðferð fyrir Ítalskt brauð:

Hitið mjólk og vatn í örbylgjunni og bætið gernum út í. Blandið olíu, sykri og salti og fínmöluðu rósmaríni saman við og síðan hveiti. Hnoðið þar til deigið er vel samfellt og gljáandi. Fletjið það út á smurða plötu og látið það lyfta sér í u.þ.b 30-40 mínútur, eða þar til það hefur tvöfaldast. Ýtið ofan á með vísifingi á við og dreif og penslið með blöndu af eggi og mjólk.
Stráið fersku rósmaríni þétt yfir og sesamfræi. Dreifið vel af grófu salti yfir. Bakið við 210 gráður í miðjum ofni, í 15-20 mínútur. Penslið með ólífuolíu áður en borið er fram.


þessari uppskrift að Ítalskt brauð er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Ítalskt brauð
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Ítalskar uppskriftir  >  Ítalskt brauð