Humar í karrýÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4462 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Humar í karrý. 1,5-2 kíló humarhalar í skel 150-200 grömm íslenskt smjör 1 teskeið karrý Season all krydd ½-1 lítri rjómi eða matreiðslurjómi Maizena sósujafnari ljós 1-2 eggjarauður Aðferð fyrir Humar í karrý: Skelflettið humarinn og hreinsið burt görnina. Kryddið halana vel med season all, og látið þá bíða í 5-10 mínútur. Bræðið smjörið á pönnu og hrærið karrýinu vel út í smjörið, eftir að það er bráðið. Setjið humarhalana á pönnuna og veltið vel upp úr smjörinu og steikið þar til að þeir fara að verpast. Hellið rjóma yfir og bætið sjósujafnara við. Hrærið vel í þar til að suða kemur upp. Látið sjóða í hálfa mínútu. Takið pönnuna af hellunni og bíðið í 1-2 mínútur eða þar til óhætt er að hræra eggjarauðunni saman við réttinn. Berið fram með ristuðu brauði og soðnum hrísrjónum. þessari uppskrift að Humar í karrý er bætt við af Sylvíu Rós þann 23.06.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|