Horn


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 2876

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Horn .

½ teskeið salt
1 bolli hveiti
100 grömm smjör, kalt
125 grömm hreinn rjómaostur
1 eggjarauða
1 matskeið mjólk

Fylling:
½ bolli sykur
2 ½ matskeið kanill
¼ bolli rúsínur
½ bolli valhnetur, saxaðar


Aðferð fyrir Horn :

Sigtið hveiti og salt. Hnoðið saman hveiti, salti, smjöri og rjómaosti. Geymið í kæli í eina klukkustund. Hitið ofninn í 175 gráður. Blandið öllum fyllingarefnunum saman. Fletjið deigið út í tvær kringlóttar kökur, ca 20 cm í þvermál. Hrærið saman mjólk og eggjarauðu og penslið á deigið. Skerið út þríhyrninga og jafnið fyllingunni yfir og rúllið upp. Setjið á plötu með bökunarpappír og pensið með eggi. Bakið í 20-30 mínútur.

þessari uppskrift að Horn er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Horn
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Brauðuppskriftir  >  Horn