Grjónatafl


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 3 - Fitusnautt: Nei - Slög: 2260

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Grjónatafl.

400 gröm kalkúnabringa
200 gröm brokkolí
1 búnt púrrlaukur
1 stórt epli
2 desilítrar epladjús
4 teskeiðar hveiti
1 matskeið sykur
1/2 teskeið sinnepsduft
1 matskeið ferskur engifer
2 matskeiðar jómfrúar ólífuolía
1 matskeið karrý

Aðferð fyrir Grjónatafl:

Hitaðu Wok pott við háan hita. Helltu olíunni í og léttsteiktu karrýið. Skerðu kalkúninn i litla bita og brúnaðu hann í olíunni. Skolaðu brokkolíið skerðu stilkinn af og skerðu hann í litla strimla (bara það sem lítur vel út) skiftu svo afganginum af brokkkolíinu í passandi bita. Hreinsaðu púrrlaukinn vel og skerðu í strimla. Skrælið engiferinn og skerið í teninga. Skrælið eplið og skerið í báta. Blandið hveitinu í epladjúsinn. Setjið hræringinn ásamt sykri og sinnepi í pottinn og hrærið vel þar til þetta er orðið þykkt. Setjið lok á pottinn og látið þetta sjóða í cirka 10 mínútur, og svo er rétturinn tilbúinn.

Berið fram með hrísgrjónum og ýmiskonar meðlæti í litlum skálum t.d bönunum, maís, kókosmjöli, cherry tómötum, sultuðum hvítlauk, rúsínum og grænum baunum og mango chutney.

þessari uppskrift að Grjónatafl er bætt við af Sylvíu Rós þann 10.08.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Grjónatafl
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Austrænn matur  >  Grjónatafl