Grillspjót


Árstíð: Sumar - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 5429

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Grillspjót.

1 svínalund
1 pakki pylsubitar (eða niðurskornar pylsur)
1 pakki beikon í sneiðum
8 sveppir
1 paprikka
8 cherry tómatar
2 stórir laukar


Aðferð fyrir Grillspjót:

Þerrið svínalundina og skerið í 8 sneiðar og klæðið með beikoni. Hreinsið sveppina. Hreinsið laukinn og skerið í báta. Skolið paprikkuna og skerið í 8 bita. Rúllið hálfri beikonsneið um hvern pylsubita. Raðið 2 kjötbitum, 2 laukbátum, 2 tómötum, 2 sveppum, 2 paprikkubitum og 4 pylsubitum á hvert spjót, í fallega röð. Kryddið með pipar og paprikkudufti. Smyrjið ristina og grillið.

þessari uppskrift að Grillspjót er bætt við af Sylvíu Rós þann 10.08.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Grillspjót
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Grilluppskriftir  >  Grillspjót