Franskar pönnukökur


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3067

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Franskar pönnukökur.

Deig:
1 1/4 desilítri hveiti
1/4 teskeið salt
2 desilítrar kaffirjómi
1 desilítri vatn
2 egg
30 grömm smjör, brætt
Rifið hýði af 1/2 sítrónu

Sósa:
30 grömm smjör
1/2 desilítri flórsykur
Rifið hýði af 1 appelsínu

Flambering:
1/2 desilítri koníak eða líkjör

Aðferð fyrir Franskar pönnukökur:

Blandið öllum deigefnunum saman í skál og bakið þunnar pönnukökur. Brjótið þær í fernt og raðið þeim í eldfast mót eða koparpönnu og haldið þeim heitum. Setjið öll sósuefnin í pott og sjóðið í nokkrar mínútur. Hellið þessu yfir pönnukökurnar. Gott er að setja pönnukökurnar í pönnunni inn í 275gráðu heitan ofn, í nokkrar mínútur. Þá verður koníaksteikingin"flamberingin" auðveldari. Setjið pönnuna á heita hellu, hellið víninu yfir og kveikið í. Snúið pönnukökunum af og til í sósunni. Einnig er hægt að hita vínið í
litlum potti, kveikja í því í pottinum og hella síðan logandi yfir pönnukökurnar á heitri pönnunni.


þessari uppskrift að Franskar pönnukökur er bætt við af Sylvíu Rós þann 13.07.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Franskar pönnukökur
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Franskar uppskriftir  >  Franskar pönnukökur