Franskar kálfasneiðar


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 2 - Fitusnautt: Nei - Slög: 1971

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Franskar kálfasneiðar.

2 þunnar sneiðar kálfavöðvi
2 skinkusneiðar
2 sneiðar óðalsostur
Salt
Pipar
30 grömm smjör
1/2-1 desilítri rifinn óðalsostur

Aðferð fyrir Franskar kálfasneiðar:

Leggið skinku og ostsneiðar ofan á hvora kjötsneið. Leggið þær saman og lokið með tannstöngli eða kjötprjóni. Steikið kjötið í smjöri á pönnu í um það bil 3 mínútur á hvorri hlið og stráið kryddi yfir. Færið kjötið upp í eldfast fat. Stráið rifna ostinum yfir og bakið við 225 gráður í 6-7 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður. Berið fram með kartöflum og salati.

þessari uppskrift að Franskar kálfasneiðar er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 20.01.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Franskar kálfasneiðar
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Nautakjöt  >  Franskar kálfasneiðar