Fiskréttur með pasta


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 5396

Senda með tölvupóstPrenta út

Smelltu hér til að sjá stærri mynd

Mildur og afbragðsgóður fiskiréttur.
Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Fiskréttur með pasta.

2 bollar pasta
500-600 grömm fiskur (ýsa - þorskur)
1 paprikka
4 meðalstórar gulrætur
Lítill laukur
1 teskeið salt
1/2 teskeið pipar
1 tekseið Seson all
1/2 teskeið hvítlauksduft
1 dós sveppa- eða beikonostur
1 desilítri tómatsósa
1/2 desilítri sýrður rjómi
Matvinnslurjómi eða mjólk
Rifinn ostur

Aðferð fyrir Fiskréttur með pasta:

Sjóðið pastað í vatni í cirka 15 mínútur. Ofninn hitaður í 180 gráður. Fiskurinn, roð og beinhreinsaður, skorinn í bita og raðað í eldfast fat. Kryddi stráð yfir. Laukur, gulrætur og paprika skorið smátt og steikt í olíu í u.þ.b 2 mínútur og síðan dreift yfir fiskinn. Vatninu hellt af pastanu og því líka dreift yfir. Smurostur settur í skál ásamt tómatsósu og sýrðum rjóma og hrært vel saman, þynnt aðeins með matvinnslurjóma / mjólk, svo auðvelt sé að hella því yfir. Að lokum er osti dreift yfir. Bakað í ofni í cirka 20 mínútur. Borið fram með hvítlauksbrauði og fersku salati.

þessari uppskrift að Fiskréttur með pasta er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 25.08.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Fiskréttur með pasta
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Fiskiuppskriftir  >  Fiskréttur með pasta