Doritos kjúlli


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 12797

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Doritos kjúlli.

1 poki kjúklingabringur (cirka 4 bringur)
1 blár doritos snakkpoki
2 ostasósur
1 salsasósa
1 poki rifinn ostur

Aðferð fyrir Doritos kjúlli:

Kjúklingabringurnar skornar í bita og steiktar á pönnu. Kryddaðar vel eftir smekk. Eldfast mót smurt með olíu. Doritos snakkið mulið og sett í mótið. Þar ofan á er ostasósunni mjakað á og síðan salsasósunni þar ofan á. Síðan er kjúklingabringunum skellt ofan á og ostinum stráð yfir.
Bakað í ofni við 200 gráður, í 15-20 mínútur. Borið fram með hvítlauksbrauði, hrísgrjónum og salati.

þessari uppskrift að Doritos kjúlli er bætt við af Magga þann 10.03.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Doritos kjúlli
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kjúklingauppskriftir  >  Doritos kjúlli