BláberjasósaÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 8382 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Bláberjasósa. Sósan er bláberjasósa með gæsasoði, þannig það er gott að búa til sósuna með gæsasteikinni eða með soði úr frystinum. Soð: Kryddaði og brúnaði gæsalærin(önd-Rjúpa) í potti í matarolíu, bætið svo við: 2 lítrum af vatni 3 einiberjum 2 lárviðarlaufum 3 negulnöglum 1 brytjaðri gulrót 1 saxaður laukur Kryddið með pipar og einum teningi af súpukrafti þetta látið malla í 3 tíma og geymist svo í ísskáp þangað til það á að nota soðið. Sósan sjálf: 1/2 lítri soð 2 desilítri rjómi 1 desilítri bláberjasulta 100 grömm bláber Smjörbolla (30 grömm smjörlíki og 30 grömm hveiti) Aðferð fyrir Bláberjasósa: Bræðið smjörið og blandið hveitinu smá saman við. Hellið soðinu út í og hrærið um leið. Bætið sultu og rjóma útí og setjið svo bláberin í rétt áður en sósan er borin fram. þessari uppskrift að Bláberjasósa er bætt við af Garðar Hvítfeld þann 25.11.09. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|