Bananabrauð - Uppskrift af bananabrauðiÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 11795 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í þessa uppskrift af bananabrauði: 3-4 þroskaðir bananar 2 ½ desilítrar All-Bran eða annað mjög trefjaríkt morgunkorn 1 desilítrar matarolía 2 desilítrar sykur 2 egg 5 desilítrar hveiti 1 ½ teskeið lyftiduft ½ teskeið salt 1 desilítri grófsaxaðar hnetur Aðferð: Stappið bananana og blandið All-Brani saman við. Látið standa í 3 mínútur eða þar til kornið er orðið lint. Þeytið saman olíu, egg og sykur í annari skál. Blandið banana-hrærunni saman við eggjablönduna. Blandið saman hveiti, lyftidufti, salti og hnetum og bætið í deigið. Setjið deigið í smurt aflangt kökuform. Bakið á neðstu rim í ofni við 180 gráður ,í um eina klukkustund. Kælið vel áður en brauðið er sneitt. Gott er að vefja rökum klút um brauðið á meðan það kólnar. Bananabrauð - Uppskrift af bananabrauði er bætt við af Sylvíu Rós þann 13.07.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 36 áskrifendur.
|