Andabringa með bláberjum


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 2 - Fitusnautt: Nei - Slög: 6556

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Andabringa með bláberjum.

2 andabringur 300 grömm hver
Salt og pipar
1 skarlottulaukur
1 1/2 matskeið olía
3 desilítrar kjúklingasoð eða kraftur
75 grömm bláber
2 teskeiðar eplasulta
1 teskeið balsamikedik
Salt og pipar
1 teskeið vatn
1 teskeið hveiti

Meðlæti/skraut
2-3 epli
50 grömm hakkaðar heslihnetur
20 grömm smjör


Aðferð fyrir Andabringa með bláberjum:

Ristið aðeins í skinnið á öndinni og kryddið með salti og pipar. Setjið bringurnar í smurða ofnskúffu. Brúnið í 20 mínútur við 225 gráður. Pakkið kjötinu í álpappír og látið það standa í 15-20 mínútur. Skerið kjötið í sneiðar.

Saxið laukinn og snöggsteikið hann í olíu. Hellið soðinu í og látið þetta malla í 3-4 mínútur. Bætið bláberjum, sultu og ediki í og hrærið þetta vel saman. Látið þetta sjóða í 1 mínútu. Blandið hveitinu í vatn og hrærið því útí sósuna. Smakkið til með salti og pipar.
Skerið eplin í báta og rúllið þeim uppúr hnetunum. Steikið þau gullin í smjörinu og berið fram með öndinni og sósunni.

þessari uppskrift að Andabringa með bláberjum er bætt við af Sylvíu Rós þann 27.03.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Andabringa með bláberjum
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Villibráð  >  Andabringa með bláberjum