After eight bananasplitt


Árstíð: Jól - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 4009

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að After eight bananasplitt.

1 líter vanilluís
8 plötur afther eight
100 grömm suðusúkkulaði
1/2 desilítri kaffirjómi
2 1/2 desilítri rjómi
4 matskeiðar pekanhnetur eða valhnetur saxaðar
Kirsuber eða jarðaber eftir smekk

Aðferð fyrir After eight bananasplitt:

Látið ísinn standa, þannig að hann verð mjúkur og meðfærilegur. Saxið after eight plöturnar og blandið þeim saman við ísinn. Frystið ísinn í aflöngu formi. Kljúfið banana í tvennt og leggið þá í skálar. Skerið ísinn eftir endilöngu þannig að hann passi á milli bananahelmingana. Bræðið súkkulaðið í kaffirjómanum við meðalhita og hrærið vel í á meðan. Hellið súkkulaðisósunni yfir ísinn og bananana. Þeytið rjómann og setjið hann ofan á allt. Stráið hnetunum yfir og skreytið með berjum.

þessari uppskrift að After eight bananasplitt er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 22.12.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

After eight bananasplitt
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Eftirréttir  >  After eight bananasplitt