Taco eða enchiladafylling


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 4221

Senda með tölvupóstPrenta út

Smelltu hér til að sjá stærri mynd

Hægt er að nota kjötsósuna í tacoskeljar eða enchiladas.
Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Taco eða enchiladafylling.

500 gröm hakk
1 niðurskorinn laukur
1 niðurskorin rauð paprikka
2 matskeiðar maísolía
2 hvítlauksgeirar, skornir smátt
2 1/2 desilíter tómatpúrra
1 teskeið þurrkað oregano
1/2 nautateningur
2 rauðir chili

Aðferð fyrir Taco eða enchiladafylling:

Steikið laukinn í olíunni þar til hann er glær. Steikið kjötið með, hrærið í með gaffli svo það komi ekki stórir klumpar. Bætið paprikku í. Bætið hvítlauk í og tómatpúrru þar til þetta er þykk sósa. Hreinsið chili og skerið í bita blandið saman við nautateninginn sem er uppleystur í smá vatni. Hellið blöndunni saman við kjötsósuna og smakkið til með salti. Lækkið undir pottinum og látið þetta malla í að minnsta kosti 1/2 tíma, eða þar til þetta er mjög þykkt. Þessu skammtur dugar í 4 stórar enchiladas (28 cm stórar) eða 12 tacoskeljar með salati.

þessari uppskrift að Taco eða enchiladafylling er bætt við af Sylvíu Rós þann 20.08.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Taco eða enchiladafylling
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Nautakjöt  >  Taco eða enchiladafylling