Þorsksrúllur


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 5917

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Þorsksrúllur.

800 grömm þorskur
1 lítri rjómi
6 stórar límónur
4 stórar gulrætur
4 tortillapönnukökur
150 grömm hrísgrjón
3 stórar paprikkur
2 kúrbítar
2 púrrlaukar
4 matskeiðar olía
3 matskeiðar taco-mix
Salt


Aðferð fyrir Þorsksrúllur:

Setjið fiskinn í eldfast mót, klætt með álpappír og gufusjóðið í cirka 12 mínútur. Látið hann svo bíða í cirka 10 mínútur.
Skerið tortillurnar í 2 ræmur, cirka 12 cm hver. Rúllið tortillunum upp (það á að vera pláss inn í) og bindið þær saman með gufusoðnum púrrlauksræmum. Troðið fisk inn í og skerið svo ofan af tortillunum svo þær verði cirka 6 cm á hæð.
Skolið hrísgrjónin og hellið þeim í pott með heitri olíu. Látið þau “poppa” smá og bætið svo 1 ½ lítra af vatni í pottinn. Saltið og kryddið með taco-mixi. Látið þetta malla í um 12 mínútur.
Skerið paprikkurnar, kúrbítana, púrrlaukinn og gulræturnar í ræmur og steikið í olíu.
Hellið rjóma í pott, kreistið safann úr 4 límónum útí og smakkið til með salti. Látið sósuna malla þar til hún er nægilega þykk.
Setjið grænmetið á fat. Látið fiskirúllurnar ofaná. Hellið smá sósu yfir. Hellið afgangnum af sósunni á fatið í kringum rúllurnar. Skreytið fiskirúllurnar með þunnum límónuskífum og berið fram.


þessari uppskrift að Þorsksrúllur er bætt við af Sylvíu Rós þann 08.07.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Þorsksrúllur
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Fiskiuppskriftir  >  Þorskur  >  Þorsksrúllur