Súkkulaðiterta


Árstíð: Jól - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 5116

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Súkkulaðiterta.

Botn:
800 grömm Síríus suðusúkkulði (8 plötur)
360 grömm smjör
2 desilítrar sykur
2 desilítrar kaffirjómi
1 teskeið vanilludropar
1/2 teskeið salt
8 stór egg

Súkkulaðibráð:
200 grömm Síríus suðusúkkulaði (konsum)
2 matskeiðar smjör
3 matskeiðar mjólk
2 matskeiðar ljóst síróp

Aðferð fyrir Súkkulaðiterta:

Botn:
Bræðið saman súkkulaði, smjör, sykur, kaffirjóma, vanilludropa og salt í potti við vægan hita og látið síðan mesta hitann rjúka úr blöndunni. Þeytið eggin létt í skál. Hellið súkkulaðiblöndunni yfir eggin og hrærið varlega saman. Bakið í 45 mínútur við 180 gráður eða þar til kakan hefur losað sig frá börmum formsins. Kælið kökuna í ísskáp í að minnsta kosti 6 klukkustundir.

Súkkulaðibráð:
Bræðið súkkulaðið og smjörið saman í potti við vægan hita. Takið pottinn af plötunni og hrærið mjólk og síróp saman við. Þá er súkkulaðibráðin sett ofan á kökuna og allt um kring. Tilvalið er að skreyta kökuna með því að sprauta þeyttum rjóma á barmana og sáldra granateplafræum yfir kökuna. Kökuna er best að geyma í kæliskáp þar til hún er borin fram.

þessari uppskrift að Súkkulaðiterta er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 27.10.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Súkkulaðiterta
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kökur  >  Súkkulaðiterta