Saltfiskbollur


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 7453

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Saltfiskbollur.

450 grömm útvatnaður saltfiskur
600 grömm mjölmiklar kartöflur, soðnar
1 ¼ bolli mjólk
6 vorlaukar, smátt saxaðir
2 matskeiðar ólífuolía
2 matskeiðar söxuð fersk steinselja
Safi úr ½ sítrónu
2 egg
Hveiti
100 grömm brauðmylsna af franskbrauði
Ólífuolía til steikingar
Salatlauf og sítrónubátar



Aðferð fyrir Saltfiskbollur:

Merjið kartöflurnar fínt með gaffli. Hellið mjólkinni í pott ásamt helmingnum af vorlauknum og komið upp suðu. Bætið saltfisknum út í. Setjið lokið á pottinn og takið hann af hitanum. Látið þetta bíða í 10 mínútur. Takið roð og bein frá og stappið fiskinn saman við kartöflurnar. Bætið við ólífuolíu, afgangnum af vorlauknum, steinselju og smakkið til með salti og sítrónusafa. Bætið við einu eggi og hrærið vel. Kælið degið. Mótið 12-18 litlar bollur úr deginu og veltið þeim upp úr hveiti, svo eggi og að lokum brauðmylsnu. Steikið á pönnu í cirka 8-10 mínútur á öllum hliðum. Berið fram með hvítlauksmajónesi og salati.

þessari uppskrift að Saltfiskbollur er bætt við af Sylvíu Rós þann 29.05.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Saltfiskbollur
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Fiskiuppskriftir  >  Saltfiskbollur