Roast beef í súpu


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3852

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Roast beef í súpu.

1 matskeið ólífuolía
400 grömm rauðkálshöfuð, fínskorið (fjarlægið ystu blöðin og stilkinn)
2 rauðlaukar í sneiðum
1 grænt epli, skrælt, kjarnhreinsað og skorið í teninga
1 matskeið púðursykur
2 hvítlauksgeirar, marðir og saxaði
3 matskeiðar rauðvínsedik
1 líter nautakjötssoð
Salt og pipar
600 grömm nautafillet, sinahreinsað

Sósa:
2 teskeiðar piparrót, rifin
2 teskeiðar hvítvínsedik
1 teskeið dijonsinnep
1 dós sýrður rjómi

Aðferð fyrir Roast beef í súpu:

Hitið ofninn í 150 gráður. Setjið epli, rauðkál, rauðlauk, púðursykur, hvítlauk, rauðvínsedik og ½ bolla af nautakjötssoðinu í eldfast mót eða pott. Bætið ólífuolíunni út í, svo salti og pipar og blandið vel saman. Setjið lok eða álpappír yfir og bakið í cirka 2 klukkustundir. Skoðið á 30 mínútna fresti hvort blandað sé of þurr, setjið þá eina matskeið af nautakjötssoðinu saman við. Takið mótið úr ofninum eftir 2 klukkustundir og látið það standa aðeins með lokinu. Hækkið hitan á ofninum í 200 gráður. Brúnið nautafillet á pönnu upp úr ólíuolíu og kryddið með salti og pipar. Setjið í ofninn í u.þ.b 10-12 mínútur, eigi kjötið að vera lítið steikt en 25 mínútur ef þið viljið að kjötið sé vel steikt. Takið kjötið úr og látið standa í 5 mínútur, áður en það er skorið í þunnar sneiðar.

Sósa:
Blandið öllu saman og kælið. Setjið sósuna á toppinn á súpunni þegar hún er komin á hvern og einn súpudisk og njótið vel.


þessari uppskrift að Roast beef í súpu er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Roast beef í súpu
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Nautakjöt  >  Roast beef í súpu