Pönnukökur með fyllingu


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 6585

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Pönnukökur með fyllingu.

5 desilítrar hveiti
1 teskeið lyftiduft
1/2 teskeið matarsódi
1/2 teskeið salt
7 desilítrar mjólk
50 grömm smjör, brætt
2 egg
1/8 teskeiðar steittar kardimommur

Fylling:
250 grömm kotasæla
1 desilítri rúsinur
1/2 desilítri saxaðar möndlur

Sósa
1 desilítri hunang
1 1/2 desilítrar kakó
2-2 1/2 desilítri kaffirjómi

Aðferð fyrir Pönnukökur með fyllingu:

Deig:
Blandið þurrefnunum í skál og hrærið mjólk og egg saman við. Setjið brætt og kælt smjörið að síðustu saman við. Bakið þunnar pönnukökur.

Fylling:
Blandið saman kotasælu rúsínum og möndlum. Jafnið hrærunni á pönnukökurnar og rúllið þeim upp. Raðið á disk. Setjið öll sósuefnin í pott og látið krauma í nokkrar mínútur. Ef sósan verður of þykk má þynna hana með rjóma. Berið pönnukökurnar fram með heitri sósunni eða hellið henni yfir þær.


þessari uppskrift að Pönnukökur með fyllingu er bætt við af Sylvíu Rós þann 14.07.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Pönnukökur með fyllingu
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kökur  >  Pönnukökur með fyllingu