Lasagna


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 20226

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Lasagna.

300 gröm Lasagnaplötur
250 gröm nautahakk
2 laukar
2 gulrætur
½ kúrbítur
1 dós tómatmauk
1 dós hakkaðir tómatar
3 hvítlauksgeirar
2 teskeiðar oregano
½ teskeið kryddmæra
½ teskeið basílikum
Salt
Pipar
Bechamelsósa:
6 desilítrar léttmjólk
3 matskeiðar hveiti
1 ½ matskeið vatn
Salt
Múskathneta
50 gröm rifinn ostur
Evt. 1 matskeið rifinn parmesanostur

Aðferð fyrir Lasagna:

Skolið lauk, gulrætur og kúrbít og skerið í bita. Steikið kjötið í potti. Bætið grænmetinu í og steikið með kjötinu í nokkrar mínútur. Bætið tómatmaukinu, hökkuðu tómötunum og kryddinu við. Látið malla í cirka 15 mínútur. Búið til bechamelsósuna á meðan. Hellið mjólkinni í pott og látið suðuna koma upp, hrærið hveitinu í kalt vatn, þangað til allir kekkir eru horfnir og blandið svo saman við mjólkina, hrærið vel. Lækkið undir sósunni og bætið osti útí, hrærið vel og kryddið með salti, pipar og múskathnetu. Hægt er að bæta smá parmasanosti í til að fá sterkara ostabragð. Smyrjið eldfast mót, hellið kjötsósu, bechamelsósu og leggjið lasagnaplötur til skiftis. Hellið að lokum kjötsósu og bechamelsósu efst og stráið osti yfir. Hitið í ofni við 200 gráður í 30 mínútur.

þessari uppskrift að Lasagna er bætt við af Sylvíu Rós þann 06.07.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Lasagna
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Ítalskar uppskriftir  >  Lasagna