Kjúklingur með púrrlauk


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 5284

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kjúklingur með púrrlauk.

4 kjúklingabringur
1 stór púrrlaukur
2 desilítrar rjómi
150 grömm beikon
1 desilítri hvítvín
Salt og pipar
Rifinn ostur


Aðferð fyrir Kjúklingur með púrrlauk:

Hreinsið púrrlaukinn og skerið hann í þunnar sneiðar. Steikið beikonið á þurri pönnu. Setjið púrrlaukinn á pönnuna og steikið hann með, í nokkrar mínútur. Hellið víni og rjóma á pönnuna. Látið þetta malla aðeins og smakkið til með salti og pipar. Hellið blöndunni í eldfast mót. Brúnið kjúklinginn aðeins á báðum hliðum. Setjið hann ofan á sósuna í mótinu. Stráið rifnum osti yfir og steikið í ofni, við 200 gráður, í cirka 20-25 mínútur. Berið fram með hrísgjónum, brauði og salati.

þessari uppskrift að Kjúklingur með púrrlauk er bætt við af Sylvíu Rós þann 10.09.08.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Kjúklingur með púrrlauk
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kjúklingauppskriftir  >  Kjúklingur með púrrlauk